Um Meistarafélag Suðurlands

Meistarafélag Suðurlands er félag meistara og fyrirtækja í löggiltum byggingargreinum á Suðurlandi, í Árnes- Rangárvalla- og Vestur - Skaftafellssýslu. Félagsmenn eru aðallega í byggingariðnaði. lsjdflksdjflksjdfklsdflkj

Markmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og stuðla að faglegum vinnubrögðum í greininni. Félagið vinnur meðal annars að aukinni menntun, verkkunnáttu og vandvirkni í byggingariðnaði og er félagsmönnum til aðstoðar í öllu sem viðkemur atvinnurekstri þeirra.

Meistarafélag Suðurlands hefur komið sér upp sinni eigin gæðahandbók. Félagið og aðildarfyrirtæki þess eru aðilar að Samtökum iðnaðarins sem eru heildarsamtök iðnaðarins í landinu með rúmlega 1300 fyrirtæki innan sinna raða, bæði stór og smá, þar á meðal öll helstu bygginga- og verktakafyrirtæki landsins

Inntökubeiðni

Með inngöngu í Meistarafélag Suðurlands verður fyrirtækið jafnframt aðili að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins.

Stjórn Meistarafélags Suðurlands

Valdimar Bjarnason Formaður
8978960
Stefán HelgasonRitari
8934933
Valur Örn Gíslason Gjaldkeri
8996006
Baldur Pálsson Meðstjórnandi
8989100
Sigurður Sigurjónsson Varaformaður
6923832
Hjálmar Freyr ValdimarssonMeðstjórnandi
8660534